Fara beint í efni

Guðjón Rúnarsson, lögmaður

Guðjón Rúnarsson er lögmaður og eigandi Dranga lögmanna, með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Hann hefur áratuga reynslu af regluverki og starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja, einkum á fjármálamarkaði.

Guðjón var framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja og forvera þeirra í 16 ár og þar áður aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Hann sat í framkvæmdastjórn Evrópsku bankasamtakanna 2000–2016 og Evrópsku vátryggingasamtakanna 2006–2016.

Guðjón hefur setið í fjölda opinberra nefnda um regluverk og stefnumótun á fjármálamarkaði, meðal annars hvítbókarnefnd um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið og nefndum um skipulag bankastarfsemi og aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbankastarfsemi.

Guðjón Rúnarsson

Starfsferill

  • Drangi lögmenn, eigandi, frá 2018
  • Guðjón Rúnarsson lögmennska, 2016–2018
  • Samtök fjármálafyrirtækja og forverar þeirra, framkvæmdastjóri, 2000–2016
  • Viðskiptaráð Íslands, aðstoðarframkvæmdastjóri, 1998–2000
  • Alþingi, lögfræðingur þingnefnda, 1993–1997

Menntun og réttindi

  • Verðbréfaréttindi (áður Löggiltur verðbréfamiðlari)
  • LL.M. í evrópskum félaga- og samkeppnisrétti, European University Institute, Flórens, 1998
  • Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi, 1996
  • Embættispróf í lögfræði (cand. jur.), Háskóli Íslands, 1993

Útgefið efni

  • Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið. Einn höfunda. Fjármála- og efnahagsráðuneytið og forsætisráðuneytið, desember 2018.
  • Skipulag bankakerfis. Einn höfunda. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, janúar 2018.
  • Kostir og gallar við aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbankastarfsemi. Einn höfunda. Fjármála- og efnahagsráðuneytið, júní 2017.
  • Rules of Origin (upprunareglur í viðskiptum). LL.M.-ritgerð, European University Institute, Flórens, 1998.
  • Samruni og yfirtaka félaga. Kandídatsritgerð, Lagadeild Háskóla Íslands, 1993.

Hafa samband

Guðjón Rúnarsson lögmaður

Netfang: gudjon@drangi.is

Sími: 698 7110