Fara beint í efni

Um Dranga

Drangi aðstoðar einstaklinga, fyrirtæki og fjárfesta við samningagerð og úrlausn lagalegra álitaefna, með sérstaka áherslu á félaga-, samninga- og samkeppnisrétt. Drangi veitir einnig ráðgjöf um hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum og öðrum aðilum.

Guðjón Rúnarsson lögmaður, eigandi Dranga, starfaði í tvo áratugi við hagsmunagæslu fyrir íslenskt atvinnulíf, þar af lengstum á fjármálamarkaði. Hann býr yfir mikilli reynslu af því að leiða saman ólík sjónarmið og finna lausnir.

Guðjón Rúnarsson

Áreiðanleikakönnun (KYC) og peningaþvættisvarnir

Drangi lögmenn falla undir lög nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka þegar stofan kemur að tilteknum viðskiptum fyrir hönd viðskiptamanna, svo sem fjármála- og fasteignaviðskiptum, kaupum og sölu fyrirtækja, umsýslu fjármuna, verðbréfa eða annarra eigna eða stofnun og rekstri félaga. Í slíkum tilvikum ber stofunni, áður en stofnað er til viðskiptasambands, að framkvæma áreiðanleikakönnun sem felur meðal annars í sér að staðfesta deili á viðskiptamönnum og raunverulegum eigendum og uppruna fjármuna þar sem það á við. Umfang áreiðanleikakönnunar ræðst af áhættumati, þar sem meðal annars er litið til eðlis viðskiptanna og þeirra ríkja sem tengjast þeim.